Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Daníel Aron Finnsson
  • Staður: Drangsnes
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Nemi í Grunnskólanum á Drangsnesi
  • Um mig: Ég er ljóshærður, hrokkinhærður hnokki í 3. bekk og bý á Drangsnesi í augnablikunu. Ég er algjör íþróttaálfur og hef mest gaman af að vera í fótbolta og körfubolta.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

yyyyyyyyyyyyyyeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeesssssssssssssssssssssssssssssss er að fara að æfa á trommur vvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvvohhhhhhhhhhhhhh

09. mars 2010 klukkan 11:39
er búin að tala við bjarna tónlistakennara og bara yes yes yyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyesssssssssssssssssLaughingInnocent en það leiðinlega er að liverpool tabaði á móti
wigam figam 1-0 aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaarrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrgggggggggggggggggggggggggggggggggggggggggCry
Daníel Aron Finnsson

Hæ..

30. mars 2008 klukkan 20:25
Hæ hæ
Langt síðan ég hef skrifað, er bara alltaf svo mikið að gera hjá mér..
Ég er alltaf í skólanum, að æfa á gítar, fótboltaæfingar 3x í viku og svo bara að leika mér við vini mína..
Núna er rosa mikill snjór úti,það snjóar alltaf svo mikið að við erum að verða svolítið þreytt á því, við bíðum spennt eftir vorinu það hlýtur að fara að láta sjá sig..
Ég er búinn að fara á fótboltamót á Akureyri, það var rosa gaman og gekk vel..

Væri gaman ef þið mynduð kvitta á síðuna mína:-)
Kveðja
Daníel Aron
Daníel Aron Finnsson

Hæ Hæ!!

19. september 2007 klukkan 19:14
Hæ hæ!!
Langt síðan við skrifuðum síðast...
Það hefur margt gerst síðan við létum heyra í okkur.. Við erum flutt á Reyðarfjörð, og það er rosa gaman . Ég er búinn að eignast marga vini og ég hef alltaf einhver til að leika við  þannig að mér leiðist ekkert.. Ég er að æfa fótbolta með Val og er að æfa þrisvar í viku og svo er ég líka á markmannsæfingum einu sinni í viku. Svo er ég líka kominn í tónlistarskóla er að  æfa mig á gítar, það gengur bara rosa vel..
Við förum bráðurm til Reykjavíkur í heimsókn og mig langar að reyna að hitta sem flesta, það er svo langt síðan ég hef hitt vini mína í Reykjavík..
Daníel Aron Finnsson

09. maí 2007 klukkan 20:26

Hæ allir!!


Jæja, ætli ég verði ekki að biðja hana mömmu mína að blogga eitthvað fyrir mig, ekki nenni ég þvíUllandi..


Það hefur nú ýmislegt gerst síðan við skrifuðum hér síðast, það helsta er að við erum komin heim.. Meira að segja heim á Drangsnes, í sæluna... Við mamma komum í byrjun mars og pabbi er að koma nú í lok maí.


Ég er í grunnskólanum á Drangsnesi í mjög litlum skóla en það er mjög fínt.. Svo er ég búinn að vera mikið í íþróttum, körfubolta, fótbolta og gönguskíðum.. rosa gaman.. er líka búinn að fara á eitt körfuboltamót í Keflavík og Andrésar andarleikana á Akureyri, það var rosa gaman..


Það var rosa gaman að hitta alla þegar ég kom heim, alla vinina, Björgvin bróðir og auðvitað ömmu og afa og bara alla.. var búinn að sakna allra svo mikið..

 ENNN...

svo núna í lok júlí þá ætlum við að flytja eina ferðina enn... við erum að flytja á Austfirðina.. Mamma og pabbi eru að fara að vinna í álverinu á Reyðarfirði og við erum að vonast til að geta búið á Fáskrúðsfirði, ég er orðinn soldið spenntur yfir því að fara þangað því það er mikið íþróttalíf þar og ég er algjör íþróttaálfurUllandi..

Við mamma verðum á Drangsnesi þangað til en pabbi byrjar að vinna í byrjun júní, en við mamma förum nú í heimsókn þangað og kíkjum á aðstæður og gerum herbergið mitt klárt þegar dótið mitt kemur með gámnum.. Ég hlakka mikið til þegar dótið mitt kemur, mér finnst vera soldið langt síðan ég lék mér með það..


En ég bið að heilsa núna en endilega verið dugleg að skrifa kveðjur því mér finnst svo gaman að sjá hverjir koma á síðuna mínaHlæjandi..


Bestu kveðjur

Daníel Aron..


P.S.

það eru nokkrar nýjar myndir í myndaalbúminu á síðunni hennar mömmu..

Daníel Aron Finnsson

31. janúar 2007 klukkan 00:05
Hæ hæ!!!
Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar, það var gaman að lesa þær og gaman að svona margir skuli muna eftir afmælinu mínu:-)
Það var mikið fjör í afmælinu, það komu 3 strákar úr bekknum mínum og 3 bræður sem eiga heima hérna í næsta húsi og mamma þeirra,hún er íslensk og svo var Jóel litli vinur minn og mamma hans og pabbi og auðvitað Stefán afi. Við mamma vorum búin að baka nokkrar kökur og þær kláruðust næstum því allar, enda var setið hér langt fram á kvöld:-)

Það er mjög gaman í skólanum og ég er mjög duglegur að læra, og sænskan er alltaf að verða betri og betri. Ég er farinn að tala íslensku/sænsku.. kem oft með sænsk orð inn á milli þegar ég tala við mömmu og Ingþór..

Síðustu vikur hef ég verið að fara til tannlæknis, fór fyrst bara í eftirlit, svo vikuna á eftir í plöstun... vitum nú ekki alveg hvað það er en það voru einhverjar tennur "plastaðar".. og svo í fyrramálið á að gera við 2 skemmdir:-( og ég hlakka ekki til.... vonum að þetta verði svo bara búið í bili...

Í dag fórum við mamma og keyptum skauta... ég og vinur minn vorum búinr að vera að tala um að fara að kíkja á skauta og þá verður maður að eiga skauta.. ég var svo heppinn að fá pening í afmælisgjöf þannig að ég gat keypt mér skauta, þeir kostuðu nú heldur ekki mikið.. 2500.- ísl... En svo er skautasvellinu lokað kl. hálf4 alla daga og vinur minn er ekki kominn heim fyrr en rúmlega 3 þannig að það verður erfitt að komast á skauta saman, en mamma ætlar að fara með mér á morgun þegar ég er búinn í skólanum og ég ætla að prófa skautana... ég get ekki beðið:-)
Mamma ætlar að muna að taka með myndavél og þá setjum við inn
myndir við fyrsta tækifæri..

En eins og þið vitið þá erum við með "smartsíma", þá kostar það sama að hringja í okkur og að hringja í næsta hús á Íslandi.. Svaka sniðugt.. Endilega verið dugleg að hringja í okkur..
 Síminn er 496-0069..

Ég ætla að láta þetta duga í bili en endilega verið áfram dugleg að kvitta það er svo gaman að sjá hverjir skoða síðuna mína.
Bestu kveðjur
Daníel Aron
Daníel Aron Finnsson

Halló!!!

12. janúar 2007 klukkan 15:23
Hæ hæ.. Ætli ég (mamma) verði ekki að skrifa eitthvað inn á síðuna hjá Daníel þar sem hann er greinilega ekki að standa sig;-)
Nú er jólafríið búið, hann byrjaði í skólanum 9. janúar og er bara mjög sáttur.... hann talar allavega um að það sé skemmtilegra í þessum skóla en hinum.. sem er bara mjög gott mál:-) Hann er frekar stutt í skólanum, byrjar kl. hálf 9 og er búinn annað hvort kl. 12 eða 2.. annan hvern dag er hann til kl.12 og hina dagana til kl.2.. ætla að reyna að koma honum inn í frístund þá daga sem hann er til 12, þá hefur hann aðeins meiri tíma með krökkunum, sem er náttla nauðsynlegt fyrir hann...
Hann var hjá tannlækni í morgun, og það sáust 2 holur í barnatönnum:-( þannig að við þurfum að mæta aftur í lok mánaðarins til að laga, minn var nú alls ekki sáttur með það og er strax farinn að kvíða fyrir því að fá sprautuna...
Besti vinur hans hérna, sem er íslenskur er að flytja heim í dag:-( það er frekar leiðinlegt, þeir voru rosa góðir vinir, hann á heima í "hinu" hverfinu þar sem við áttum heima áður og þeir eru alltaf saman þegar við förum að heimsækja Bjarna og Gyðu.. það verður skrytið að fara þangað í heimsókn næst, enginn Róbert:-(
Svo á guttinn afmæli eftir 4 daga... 16.janúar... gaman ef þið mynduð muna eftir því og senda honum kveðju í gestabókina, það myndi gleðja hann mikið...Við ætlum að reyna að hafa smá kaffi fyrir hann, það verða nú ekki margir sem koma, svona miðað við þegar við vorum að halda upp á afmælin hans heima, þá voru örugglega 30-40 manns í fjölskylduafmælinu... núna verða kannski 10 í allt......... en hann talar um að halda upp á það þegar hann fer heim, en það verður orðið soldið langt um liðið.. en amma hans ætlar að baka köku og hafa gott í matinn til heiðurs honum:-) Þannig að ef ykkur í köku þá fariði bara til hennar;-)Takk fyrir það amma:-)
Hann er farinn að vera með meiri heimþrá en venjulega, talar oftar um að hann vilji fara heim til Íslands:-( ekki gaman.. En ég segi honum að hann geti verið á Íslandi í allt sumar ef hann vill, og auðvitað vill hann það , en það er bara svo rosalega langt þangað til, soldið erfitt að vera þolinmóður;-)
Táin er öll að koma til, búið að taka saumana en það er enn soldið opið þannig að hann er enn með umbúðir á henni.. hann var nú ekki kátur í morgun, það er sund í skólanum í dag og hann getur ekki farið með út af henni:-( En hann fær að koma bara fyrr heim í dag, ætlum bara að kúra og horfa kannski bara á Harry Potter... uppáhaldið hans þessa dagana:-)
Jæja, man ekki eftir fleiri fréttum í billi en ég vona að hann gefi sér tíma í að skrifa nokkrar línur næst..
Biðjum að heilsa ykkur..
Daníel og co...
Daníel Aron Finnsson

ÓHAPP!!!!

16. desember 2006 klukkan 16:30
Hæ. Þetta er nú mamma sem skrifar fyrir Daníel núna, ég ætla að segja ykkur frá óhappi sem Daníel varð fyrir í gær.. Hann var hérna fyrir utan húsið okkar í gærkvöldi að tala við félaga sína þegar einn af þeim tekur upp stóran stein sem er alltaf hérna fyrir utan geymslu hurðina til að halda henni opinni þegar við förum í geymsluna, og missir hann beint ofan á stóru tánna á Daníel... og ekki vill betur til en að táin bara springur.. opnaðist á tveim stöðum, alveg efst og til hliðar og kjötið meira að segja læddist út.. mjög ljótt.. það var brunað með hann beint á slysó,í  annað skiptið síðan við fluttum, og þar tók náttúrulega við bið en samt gekk þetta ótrúlega greiðlega.. Allavega þá var táin brotin, ekki mikið samt, og saumuð 8 spor í þessa litlu stóru táFýldur. Þetta var alveg ótrúlega vont en auðvitað reyndu sumir að vera sterkir en þetta var bara svo rosalega sárt.. Núna liggur hann bara í sófanum og nytur þess að láta mömmu stjana við sigGlottandi.. Hann var svo heppinn að fá dvd frá jólasveininum í nótt þannig að það verður bara horft á dvd í dag.. Ég setti inn myndir af herlegheitunum en þær eru ekki fyrir viðkvæma, frekar  ljóttFýldur..
Læt vita hvernig þetta gengur allt saman..
bæ í bili..
mamma..
Daníel Aron Finnsson

12. desember 2006 klukkan 00:02
hæhæ  ég  er að byrja í alvöru skólanum  9janúarSvalur.  Og ég hlakka mikið tilBrosandiVið skreyttum húsið  í gær  og á morgun ætlum við að skreyta  piparkökuhúsGlottandi .  Ég er búin að fá marga pakka frá Íslandi og ég hlakka mikið til að opna þá. Svo kemur vonandi Stekkjastaur í heimsókn frá Íslandi í nótt, það er eins gott að fara snemma að sofa í kvöld.
Hejdå.  Það þýðir BLESS..
Jag saknar er..( ég sakna ykkar)

Daníel Aron Finnsson

Nýja bloggsíðan mín..

26. nóvember 2006 klukkan 22:29

Hæ allir. Ég er  kominn með bloggsiðu  og ég  sakna  ykkar  en ef að  þið viljið  koma  á  bloggsíðuna þá er það  daniel-aron  en nú verð eg að fara út af því  að ég ætla  að    skoða bloggsíðuna . Bæ allir. 

Daníel Aron Finnsson