Halló!!!
12. janúar 2007 klukkan 15:23
Hæ hæ.. Ætli ég (mamma) verði ekki að skrifa eitthvað inn á síðuna hjá Daníel þar sem hann er greinilega ekki að standa sig;-) Nú er jólafríið búið, hann byrjaði í skólanum 9. janúar og er bara mjög sáttur.... hann talar allavega um að það sé skemmtilegra í þessum skóla en hinum.. sem er bara mjög gott mál:-) Hann er frekar stutt í skólanum, byrjar kl. hálf 9 og er búinn annað hvort kl. 12 eða 2.. annan hvern dag er hann til kl.12 og hina dagana til kl.2.. ætla að reyna að koma honum inn í frístund þá daga sem hann er til 12, þá hefur hann aðeins meiri tíma með krökkunum, sem er náttla nauðsynlegt fyrir hann... Hann var hjá tannlækni í morgun, og það sáust 2 holur í barnatönnum:-( þannig að við þurfum að mæta aftur í lok mánaðarins til að laga, minn var nú alls ekki sáttur með það og er strax farinn að kvíða fyrir því að fá sprautuna...Besti vinur hans hérna, sem er íslenskur er að flytja heim í dag:-( það er frekar leiðinlegt, þeir voru rosa góðir vinir, hann á heima í "hinu" hverfinu þar sem við áttum heima áður og þeir eru alltaf saman þegar við förum að heimsækja Bjarna og Gyðu.. það verður skrytið að fara þangað í heimsókn næst, enginn Róbert:-(Svo á guttinn afmæli eftir 4 daga... 16.janúar... gaman ef þið mynduð muna eftir því og senda honum kveðju í gestabókina, það myndi gleðja hann mikið...Við ætlum að reyna að hafa smá kaffi fyrir hann, það verða nú ekki margir sem koma, svona miðað við þegar við vorum að halda upp á afmælin hans heima, þá voru örugglega 30-40 manns í fjölskylduafmælinu... núna verða kannski 10 í allt......... en hann talar um að halda upp á það þegar hann fer heim, en það verður orðið soldið langt um liðið.. en amma hans ætlar að baka köku og hafa gott í matinn til heiðurs honum:-) Þannig að ef ykkur í köku þá fariði bara til hennar;-)Takk fyrir það amma:-)Hann er farinn að vera með meiri heimþrá en venjulega, talar oftar um að hann vilji fara heim til Íslands:-( ekki gaman.. En ég segi honum að hann geti verið á Íslandi í allt sumar ef hann vill, og auðvitað vill hann það , en það er bara svo rosalega langt þangað til, soldið erfitt að vera þolinmóður;-) Táin er öll að koma til, búið að taka saumana en það er enn soldið opið þannig að hann er enn með umbúðir á henni.. hann var nú ekki kátur í morgun, það er sund í skólanum í dag og hann getur ekki farið með út af henni:-( En hann fær að koma bara fyrr heim í dag, ætlum bara að kúra og horfa kannski bara á Harry Potter... uppáhaldið hans þessa dagana:-)Jæja, man ekki eftir fleiri fréttum í billi en ég vona að hann gefi sér tíma í að skrifa nokkrar línur næst..Biðjum að heilsa ykkur..Daníel og co...
Daníel Aron Finnsson

Já amma ætlar að baka köku þegar þú átt afmæli og harpa ætlar að setja mynd af þér á borðið þannig að við ,,sjáum" þig þó þú sért ekki hjá okkur.
Það er ekkert víst að þú þurfir sprautu þegar þú ferð til tannlæknisins. Kannski getur hann gert við án þess, en annars er það ekkert vont að fá sprautuna.
Vonandi fer þér að batna tánni svo þú getir farið í sund.
Jæja nú þarf ég að sækja Sigurbjörgu í leikskólann því Dóri er á sjó, svo ætlum við aðfara á skíðaæfingu kl. 2 inn á Hólmavík. Það er nú samt ekki kominn mikill snjóren það á að reyna.
Biðjum að heilsa öllum
Kveðja amma
við að heilsa gömlu
Elsku danni innilega til hamingju með 9 ára afmælið þitt. Klukkan er sko orðin 12 hjá þér þó hún sé það ekki hér.
Hafðu það sem allra best
bestu kveðjur
Alla og Freyja
Hafðu það gott í dag og vonandi verður gaman í afmælisveislunni í dag
Bestu afmæliskveðjur
Amma og afi
P.s. Petrea er alltaf að spyrja eftir þér, saknar stóra frænda síns.
Langaði að óska þér til hamingju með afmælið.
Vona að þér líði vel í Svíþjóð en kannski eigum við eftir að hittast á Íslandi í sumar, þá getum við sko leikið.
Þinn vinur Sveinn Brynjar
bæ
harpa
til hamingju með afmælið fyrir 3 dögum;) vonandi hafðir þú það sem allra best og fékkst eitthvað rosalega flott í afmælisgjöf! það er jú það sem afmæli snúast um! hahaha
bið að heilsa í bili
kveðja haffi og sigrún