Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Daníel Aron Finnsson
  • Staður: Drangsnes
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Nemi í Grunnskólanum á Drangsnesi
  • Um mig: Ég er ljóshærður, hrokkinhærður hnokki í 3. bekk og bý á Drangsnesi í augnablikunu. Ég er algjör íþróttaálfur og hef mest gaman af að vera í fótbolta og körfubolta.

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

31. janúar 2007 klukkan 00:05
Hæ hæ!!!
Takk kærlega fyrir allar kveðjurnar, það var gaman að lesa þær og gaman að svona margir skuli muna eftir afmælinu mínu:-)
Það var mikið fjör í afmælinu, það komu 3 strákar úr bekknum mínum og 3 bræður sem eiga heima hérna í næsta húsi og mamma þeirra,hún er íslensk og svo var Jóel litli vinur minn og mamma hans og pabbi og auðvitað Stefán afi. Við mamma vorum búin að baka nokkrar kökur og þær kláruðust næstum því allar, enda var setið hér langt fram á kvöld:-)

Það er mjög gaman í skólanum og ég er mjög duglegur að læra, og sænskan er alltaf að verða betri og betri. Ég er farinn að tala íslensku/sænsku.. kem oft með sænsk orð inn á milli þegar ég tala við mömmu og Ingþór..

Síðustu vikur hef ég verið að fara til tannlæknis, fór fyrst bara í eftirlit, svo vikuna á eftir í plöstun... vitum nú ekki alveg hvað það er en það voru einhverjar tennur "plastaðar".. og svo í fyrramálið á að gera við 2 skemmdir:-( og ég hlakka ekki til.... vonum að þetta verði svo bara búið í bili...

Í dag fórum við mamma og keyptum skauta... ég og vinur minn vorum búinr að vera að tala um að fara að kíkja á skauta og þá verður maður að eiga skauta.. ég var svo heppinn að fá pening í afmælisgjöf þannig að ég gat keypt mér skauta, þeir kostuðu nú heldur ekki mikið.. 2500.- ísl... En svo er skautasvellinu lokað kl. hálf4 alla daga og vinur minn er ekki kominn heim fyrr en rúmlega 3 þannig að það verður erfitt að komast á skauta saman, en mamma ætlar að fara með mér á morgun þegar ég er búinn í skólanum og ég ætla að prófa skautana... ég get ekki beðið:-)
Mamma ætlar að muna að taka með myndavél og þá setjum við inn
myndir við fyrsta tækifæri..

En eins og þið vitið þá erum við með "smartsíma", þá kostar það sama að hringja í okkur og að hringja í næsta hús á Íslandi.. Svaka sniðugt.. Endilega verið dugleg að hringja í okkur..
 Síminn er 496-0069..

Ég ætla að láta þetta duga í bili en endilega verið áfram dugleg að kvitta það er svo gaman að sjá hverjir skoða síðuna mína.
Bestu kveðjur
Daníel Aron
Daníel Aron Finnsson
amma skrifar ...
 
Hæ Danni minn. Það er nú gott að þú keyptir þér skauta og endilega vertu duglegur að draga hana mömmu þína með þér!! Hún hefur nú bara gott af því! Hér er allt snjólaust og hvorki hægt að fara á skíði eða skauta.
Bið að heilsa mömmu og Ingþóri.
Kveðja, amma
31. janúar 2007 klukkan 17:17

Skrifa athugasemd