09. maí 2007 klukkan 20:26
Hæ allir!!
Jæja, ætli ég verði ekki að biðja hana mömmu mína að blogga eitthvað fyrir mig, ekki nenni ég því
..
Það hefur nú ýmislegt gerst síðan við skrifuðum hér síðast, það helsta er að við erum komin heim.. Meira að segja heim á Drangsnes, í sæluna... Við mamma komum í byrjun mars og pabbi er að koma nú í lok maí.
Ég er í grunnskólanum á Drangsnesi í mjög litlum skóla en það er mjög fínt.. Svo er ég búinn að vera mikið í íþróttum, körfubolta, fótbolta og gönguskíðum.. rosa gaman.. er líka búinn að fara á eitt körfuboltamót í Keflavík og Andrésar andarleikana á Akureyri, það var rosa gaman..
Það var rosa gaman að hitta alla þegar ég kom heim, alla vinina, Björgvin bróðir og auðvitað ömmu og afa og bara alla.. var búinn að sakna allra svo mikið..
ENNN...
svo núna í lok júlí þá ætlum við að flytja eina ferðina enn... við erum að flytja á Austfirðina.. Mamma og pabbi eru að fara að vinna í álverinu á Reyðarfirði og við erum að vonast til að geta búið á Fáskrúðsfirði, ég er orðinn soldið spenntur yfir því að fara þangað því það er mikið íþróttalíf þar og ég er algjör íþróttaálfur
..
Við mamma verðum á Drangsnesi þangað til en pabbi byrjar að vinna í byrjun júní, en við mamma förum nú í heimsókn þangað og kíkjum á aðstæður og gerum herbergið mitt klárt þegar dótið mitt kemur með gámnum.. Ég hlakka mikið til þegar dótið mitt kemur, mér finnst vera soldið langt síðan ég lék mér með það..
En ég bið að heilsa núna en endilega verið dugleg að skrifa kveðjur því mér finnst svo gaman að sjá hverjir koma á síðuna mína
..
Bestu kveðjur
Daníel Aron..
P.S.
það eru nokkrar nýjar myndir í myndaalbúminu á síðunni hennar mömmu..
Daníel Aron Finnsson
